Munkabjór
Þetta er breytt uppskrift úr bókinni Brewing Classic Styles. Uppskriftin heitir Black Scapular Dubbel en ég skipti nokkrum innihaldsefnum út því ég nennti ekki að kaupa það allt, og ég gerði mitt eigið kandí síróp því ég vildi heldur ekki kaupa það. Svo þetta verður frekar svona freestyle dubbel-inspired bjór. Ég ákvað að gera þennan því ég átti hrúgu af pilsner malti sem ég vissi ekki hvað ég ætti að gera við, svo ég fann mér bara einhverja uppskrift. ...