Á krana

Eplasafi

Bara kolsýrður eplasafi…..

11. september 2026

Eiríkur Rauði rauðöl

Nice rauðöl, rétt yfir 5% áfengi. Pínu bitur en ágætlega sætur i guess. Uppskrift frá brew.is

15. ágúst 2026

Í flöskum

Bell's Two Hearted IPA

Þessi er 7% IPA, uppskrift frá brew.is

13. september 2026

Í vinnslu

Munkabjór

Þetta er breytt uppskrift úr bókinni Brewing Classic Styles. Uppskriftin heitir Black Scapular Dubbel en ég skipti nokkrum innihaldsefnum út því ég nennti ekki að kaupa það allt, og ég gerði mitt eigið kandí síróp því ég vildi heldur ekki kaupa það. Svo þetta verður frekar svona freestyle dubbel-inspired bjór. Ég ákvað að gera þennan því ég átti hrúgu af pilsner malti sem ég vissi ekki hvað ég ætti að gera við, svo ég fann mér bara einhverja uppskrift. ...

27. september 2026

Steve's Berry Melomel

Melomel er mjöður með berjum eða ávöxtum. Þetta verður annaðhvort sætur sterkur mjöður eða mjöög sterkur mjöður. Berin eru einhver ódýr berjablanda úr krónunni. Mjöður tekur oftast langan tíma svo ekki bíða eftir þessum. Bara besta hunangið í mjöðinn minn Berin og hunangið að blanda geði :> 4 október Nú er þetta búið að gerjast á fullu í meira en viku, og komið 70% af leiðinni. Ég er búinn að taka berin upp úr og nú þarf gerið bara að klára að gerja mjöðinn. Eftir það þarf að sía hann og leyfa honum að sitja í nokkrar vikur áður en hann verður drekkanlegur. ...

22. september 2026

Vienna Lager

Vienna lager frá brew.is. Dekkri lager með miklu maltbragði. Lítil beiskja, og 5% áfengi. Gerjunin tekur 17 daga, og svo þarf að lagera hann í nokkrar vikur svo hann verður vonandi tilbúinn í byrjun nóvember. Mig langaði að prófa að gera “alvöru” póst svo ég ákvað að sýna hvernig bjórinn er gerður. Hvernig brugga ég hann? Ég ákvað að vera góður við fjölskylduna mína og gera þennan í bílskúrnum. Þeim finnst lyktin af þessu víst ekki jafn góð og mér. ...

20. september 2026

Einfaldur mjöður

9 lítra mjöður sem er búinn að vera að stríða mér og taka allt of langan tíma að gerjast. Ef allt gengur eftir óskum verður hann eitthvað like 13%, nenni ekki að tékka hvað það var. Mun kannski blanda kirsuberjasafa og gera kirsuberjamjöð.

13. september 2026

Apple Cider

15 lítrar af einföldum apple cider úr bónus eplasafa. Geri ráð fyrir um 5% áfengi. Mun örugglega vera alveg nokkrar vikur að verða tilbúinn.

12. september 2026

Made Up Lager

Ljós lager sem ég skáldaði, að lagerast í 8 lítra kút. Sirka 6.6% áfengi, 13.4 IBU (ekki bitur). Mjög mildur, smá malty. Geri ráð fyrir að hann verði tilbúinn um miðjan október.

26. ágúst 2026

Á planinu

Bee Cave ljósöl

Þetta er uppskrift frá brew.is. Þetta var fyrsti bjórinn sem ég bruggaði, og hann endaði frekar undarlega. Nú ætla ég að gera aðra atlögu og sjá hvernig það gengur. Ég ætla líka að gera mína fyrstu tilraun til að gera 20 lítra uppskrift, en það gæti orðið smá flókið þar sem suðupotturinn minn er bara 15 lítrar.

4. október 2026

Eiríkur Rauði rauðöl

Ég keypti óvart hráefni í 20 lítra af þessum bjór svo ég mun gera hann aftur

15. september 2026