Vienna Lager

Vienna lager frá brew.is. Dekkri lager með miklu maltbragði. Lítil beiskja, og 5% áfengi. Gerjunin tekur 17 daga, og svo þarf að lagera hann í nokkrar vikur svo hann verður vonandi tilbúinn í byrjun nóvember. Mig langaði að prófa að gera “alvöru” póst svo ég ákvað að sýna hvernig bjórinn er gerður. Hvernig brugga ég hann? Ég ákvað að vera góður við fjölskylduna mína og gera þennan í bílskúrnum. Þeim finnst lyktin af þessu víst ekki jafn góð og mér. ...

20. september 2026

Made Up Lager

Ljós lager sem ég skáldaði, að lagerast í 8 lítra kút. Sirka 6.6% áfengi, 13.4 IBU (ekki bitur). Mjög mildur, smá malty. Geri ráð fyrir að hann verði tilbúinn um miðjan október.

26. ágúst 2026