Vienna lager frá brew.is.
Dekkri lager með miklu maltbragði. Lítil beiskja, og 5% áfengi.
Gerjunin tekur 17 daga, og svo þarf að lagera hann í nokkrar vikur svo hann verður vonandi tilbúinn í byrjun nóvember.
Mig langaði að prófa að gera “alvöru” póst svo ég ákvað að sýna hvernig bjórinn er gerður.
Hvernig brugga ég hann?
Ég ákvað að vera góður við fjölskylduna mína og gera þennan í bílskúrnum. Þeim finnst lyktin af þessu víst ekki jafn góð og mér.

Bílskúrs brewery reveal
Þetta voru sirka 2.3kg af malti sem fékk að sitja í vatni við 64 gráður í klukkutíma. Eftir það var kornið tekið upp úr og eftir voru 14 lítrar af sætum virt.

Þá er kominn tími til að sjóða þennan vökva. Það er gert til að drepa bakteríur, láta smá vatn gufa upp og ná bragðinu úr humlunum.
Í þessa uppskrift notaði ég samtals 25g af humlum.

A little goes a long way

Humlar í pottinn

Boil away
Eftir klukkutíma suðu er virturinn kældur með kælispíral, þar sem kalt vatn rennur í gegnum hann og kælir hvað sem hann er ofaní. Kælispírallinn er ný græja sem ég var að kaupa mér.

Kælispírallinn

Tók enga stund að kæla allan virtinn
Svo þegar virturinn er orðinn sæmilega kaldur er hann svo settur í gerjunarílátið, mitt er 10 lítra Ikea plastílát sem passar rétt svo í gerjunarskápinn minn.
Kominn í ísskápinn
Ég notaði ger úr seinasta lagernum mínum, og eftir það þá fær bjórinn að gerjast í um 2 vikur.
Núna eru allir fletir í bílskúrnum orðnir vel klístraðir og tími fyrir leiðinlegasta partinn: að þrífa allt.

Ég sullaði út um allt við að ná sýnishorni til að mæla sykurmagnið
Allt í allt tók þetta rúma 6 tíma, fyrir utan tímann sem tekur að vaska allt upp. Þannig ekki vanmeta hvað þetta er mikil vinna haha.

Uppvaskið má bíða því ég er þreyttur
Mun bæta við meira þegar gerjunin er komin lengra.