Bjórinn
Þetta er uppskrift frá brew.is. Þetta var fyrsti bjórinn sem ég bruggaði, og hann endaði frekar undarlega. Nú ætla ég að gera aðra atlögu og sjá hvernig það gengur. Ég ætla líka að gera mína fyrstu tilraun til að gera 20 lítra uppskrift, en það gæti orðið smá flókið þar sem suðupotturinn minn er bara 15 lítrar.
Hann er 6% og bara ágætur á bragðið.
20 október
Gerjunin er búin og bjórinn er að vera kældur til að ná gerinu úr honum. Planið er að setja hann í kút (smá vandamál að ég hef ekki nóg af kútum eða flöskum undir hann) og svo ætti hann að verða tilbúinn fljótlega.
24 október
Nú er þessi kominn í nýja 19 lítra corny kútinn minn svo það er loksins hægt að fá sér af honum.