Yooper Pale Ale

Bjórinn Þetta er pale ale uppskrift af internetinu (homebrewtalk.com). Hann á að vera með aðeins meira maltbragði, og ég minnkaði humlana því mig langaði í eitthvað minna biturt í þetta skipti. Áætlun: 5.2% áfengi, ljós á litinn, 20 IBU. 21 nóvember Byrjaði að gera hann 21 nóvember, býst við rúmlegri viku í gerjun, nokkra daga af cold crashing og svo nokkra daga að kolsýra. Ætla að reyna að gera hann á styttri tíma en vanalega. ...

21. nóvember 2026

Gunness

Gunness er þurrstútur, eins og Guinness. Þessi er hinsvegar gerður með haframjöli í staðinn fyrir byggflögurnar sem eru notaðar í Guinness. Það var alls ekki vegna þess að brew.is átti ekki byggflögur. Gunness var request frá mömmu, því heitir hann Gunness. Planið er 4.4% áfengi en það getur alveg breyst eftir hvernig gerinu gengur. Kominn í flöskur Hann endaði í 4.7% áfengi, og er núna að kolsýrast á flöskum.

29. október 2026

Bee Cave ljósöl

Bjórinn Þetta er uppskrift frá brew.is. Þetta var fyrsti bjórinn sem ég bruggaði, og hann endaði frekar undarlega. Nú ætla ég að gera aðra atlögu og sjá hvernig það gengur. Ég ætla líka að gera mína fyrstu tilraun til að gera 20 lítra uppskrift, en það gæti orðið smá flókið þar sem suðupotturinn minn er bara 15 lítrar. Hann er 6% og bara ágætur á bragðið. 20 október Gerjunin er búin og bjórinn er að vera kældur til að ná gerinu úr honum. Planið er að setja hann í kút (smá vandamál að ég hef ekki nóg af kútum eða flöskum undir hann) og svo ætti hann að verða tilbúinn fljótlega. ...

4. október 2026

Munkabjór

Bjórinn Þetta er breytt uppskrift úr bókinni Brewing Classic Styles. Uppskriftin heitir Black Scapular Dubbel en ég skipti nokkrum innihaldsefnum út því ég nennti ekki að kaupa það allt, og ég gerði mitt eigið kandí síróp því ég vildi heldur ekki kaupa það. Svo þetta verður frekar svona freestyle dubbel-inspired bjór. Ég ákvað að gera þennan því ég átti hrúgu af pilsner malti sem ég vissi ekki hvað ég ætti að gera við, svo ég fann mér bara einhverja uppskrift. ...

27. september 2026

Vienna Lager

Bjórinn Vienna lager frá brew.is. Dekkri lager með miklu maltbragði. Lítil beiskja, og 5% áfengi. Gerjunin tekur 17 daga, og svo þarf að lagera hann í nokkrar vikur svo hann verður vonandi tilbúinn í byrjun nóvember. Mig langaði að prófa að gera “alvöru” póst svo ég ákvað að sýna hvernig bjórinn er gerður. Hvernig brugga ég hann? Ég ákvað að vera góður við fjölskylduna mína og gera þennan í bílskúrnum. Þeim finnst lyktin af þessu víst ekki jafn góð og mér. ...

20. september 2026