Yooper Pale Ale

Bjórinn Þetta er pale ale uppskrift af internetinu (homebrewtalk.com). Hann á að vera með aðeins meira maltbragði, og ég minnkaði humlana því mig langaði í eitthvað minna biturt í þetta skipti. Áætlun: 5.2% áfengi, ljós á litinn, 20 IBU. 21 nóvember Byrjaði að gera hann 21 nóvember, býst við rúmlegri viku í gerjun, nokkra daga af cold crashing og svo nokkra daga að kolsýra. Ætla að reyna að gera hann á styttri tíma en vanalega. ...

21. nóvember 2026

Bee Cave ljósöl

Bjórinn Þetta er uppskrift frá brew.is. Þetta var fyrsti bjórinn sem ég bruggaði, og hann endaði frekar undarlega. Nú ætla ég að gera aðra atlögu og sjá hvernig það gengur. Ég ætla líka að gera mína fyrstu tilraun til að gera 20 lítra uppskrift, en það gæti orðið smá flókið þar sem suðupotturinn minn er bara 15 lítrar. Hann er 6% og bara ágætur á bragðið. 20 október Gerjunin er búin og bjórinn er að vera kældur til að ná gerinu úr honum. Planið er að setja hann í kút (smá vandamál að ég hef ekki nóg af kútum eða flöskum undir hann) og svo ætti hann að verða tilbúinn fljótlega. ...

4. október 2026