Bjórinn
Þetta er pale ale uppskrift af internetinu (homebrewtalk.com). Hann á að vera með aðeins meira maltbragði, og ég minnkaði humlana því mig langaði í eitthvað minna biturt í þetta skipti.
Áætlun: 5.2% áfengi, ljós á litinn, 20 IBU.
21 nóvember
Byrjaði að gera hann 21 nóvember, býst við rúmlegri viku í gerjun, nokkra daga af cold crashing og svo nokkra daga að kolsýra. Ætla að reyna að gera hann á styttri tíma en vanalega.